15.6.2011 Kjarni með 1. verðlaun fyrir afkvæmi Kjarni frá Þjóðólfshaga 1 er kominn með 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Þetta varð ljóst í dag þegar nýtt kynbótamat leit dagsins ljós. Kjarni er með 118 stig og 18 dæmd afkvæmi.
Drífa frá Hafsteinsstöðum, heimsmethafi í 100 m skeiði, kastaði sínu fyrsta folaldi á dögunum. Það er hestfolald undan Frosta frá Efri-Rauðalæk. Skyldi hann eiga eftir að slá met þeirrar gömlu?
9.6.2011 Ungir og efnilegir Tveir ungir og efnilegir folar frá okkur hafa farið í dóm á síðustu dögum. Dagur frá Þjóðólfshaga var sýndur á Hellu í síðustu viku og stóð þar efstur fjögurra vetra fola í fyrri sýningarviku. Dagur er undan Dáð frá Halldórsstöðum og Kjarna frá Þjóðólfshaga. Hann hlaut í aðaleinkunn 7,82. Magni frá Þjóðólfshaga var svo sýndur í gær á Mið-Fossum, hann er undan Bjöllu frá Hafsteinsstöðum og Tind frá Varmalæk. Hann fékk 7,97 í aðaleinkunn, m.a. 9,0 fyrir fegurð í reið og hægt tölt. Efnisfolar báðir tveir og eiga mikið inni! Myndin er af Magna frá Þjóðólfshaga. Lesa meira...
Bragi frá Austurkoti fór í flottar tölur í Þýskalandi um helgina. Bragi er undan Kjarna okkar frá Þjóðólfshaga og Hrafntinnu frá Reykjavík, ræktuð af þeim Palla og Hugrúnu í Austurkoti. Siggi sýndi þennan fola í Finnlandi í fyrra og náði hann þar fyrstu verðlaunum. Sýnandi nú var Lena Trappe. Dómurinn fylgir hér að neðan: